Blöndals Bull

 

 

Blöndals Bull er =Bull Shit

hér er safn af gömlu BB

Í auglýsingum má lesa um Geðveik tilboð og er þá verið að vísa til gæða tilboðsins,en ef éinhver segir að hann sé geðveikur í atvinnu umsókn þá vill enginn ráða hann í vinnu af hverju?

Það er alltaf eitthvað.

  

Jæja þá eru jólin að koma skrautið komið upp hjá mörgum aðrir bíða með það fram á síðustu stundu eða þannig.

Ég er að hugsa um þessa setningu Á SÍÐUSTU STUNDU hvað þýðir hún?Síðasta klukku stund?Er það síðasta STUNdin fyrir andlátið?

Margir segja að alltaf sé gaman á jólunum og fólk kemst í jóla SKAP það hlítur því að vera gott skap. er ekki hægt að vera í því skapi oftar? Er það eins með jóla föt?

Margir geta ekkert keypt fyrir jólin, aðrir kaupa svo mikið fyrir jólin að þeir geta ekkert keypt fyrr en næsta vor.

Ætli einhver hafi fengið svo slæmt kvef að hann hafi dáið úr hor?

Hvernig getur maður gengið of langt sem alldrei hefur farið neitt?

Ekki meira blöndalsbull að sinni

 

  Spurt  

Til hvers er ég fæddur ?  Til hvers er ég til ?  Er ég til þess neyddur ? Eða er þetta eitthvað sem ég vil ?

Hvað er lífið? Það fer eftir því hvern þú spyrð.

 

    

Einar hestaflutningamaður var spurður hvaðan merin  væri sem var á bílnum og svaraði hann því til að móðirin væri Þvæla frá Endaleysu en faðrinn væri Uppspuni frá Rótum.

 

  Í upphafi var orðið.  

Hvað væri heimurinn ef ekkert hefði orðið?

Orð er eins og fólk það er ekki alltf að marka það.

Vertu viss um að Orðið hljómi rétt.

Sár af völdum orða geta verið lengi að gróa.

Við skiljum ekki orð úr öðrum tugumálum af því þau eru frosinn þess vegna þarf að þýða þau.

Það var í fréttum að ýmsu í rekstri ríkis stofnana væri ábóta vant,ég vissi  ekki að ríkið ræki klaustur og því síður hafði ég séð stöðu Ábóta lausa til umsóknar.

Bært merkir það ekki að eitthvað sé berandi? Þannig ef ég ber eitthvað frá þér þá er það frábært,en ekki stolið.

Ekki meira blöndals bull að sinni

 

  Kvalinn?  

Hvað á að gera við hvalinn sem þeir drápu í morgunn?

Það er fólk í öðrum löndum drepið á hverjum degi og það kemur enginn  whats on eða blue or red or green pís að mótmæla, hvað er að?

Íslendingar drepa hval og það er fullt af fólki alveg kvalið yfir athæfinu, hvað er vitlaust?

Það heyrist af fólki sem liggur á hleri um allt land en enginn þorir að segja frá því afhverju ekki? Heldur fólk að einhver sé að hlera eða hvað?

Það styttist í jólin ég held að ég fari að leita að páska skrautinu þeir koma víst fljótlega eftir jól.

Ekki meira blöndals bull (=BS)að sinni.

  Hvað er rétt?  

 

Það var í fréttum í vikunni að konur fengju 2/3 af launum karla,er ekki tími til kominn að karlar fái meira en 1/3 af launum sínum?

Allir í prófkjör já ég ætla að fara í prófkjör þó ég hafi engan lista með mér.Eða má enginn nema listamenn bjóða sig framm?

Get ég boðið mig fram í öllum kjördæmum?

Er ég kannski of lítið frammboð?

Eða of lítil eftirspurn?

Mér finnst að það ætti að afskrá alla bíla sem mælast á ofsa hraða í 3 mánuði og sekta ökumennina um 10 þúsund krónur fyrir hvern kílómetra yfir leyfilegan hraða.

Meira blöndals bull (=BS) síðar.

    
Þegar búið var að stokka og gefa sást til tveggja manna reyna að breyta heiminum með áttunni.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Haraldur G Magnússon

Höfundur

Haraldur G Magnússon
Haraldur G Magnússon

Til hvers er ég fæddur ?

Til hvers er ég til ?

Er ég til þess neyddur ?

Eða er það eitthvað sem ég vil ?

Færsluflokkar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 401

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband